Til baka
Þessi tekanna kemur frá danska vörumerkinu Eva Solo. Tekannan hefur notið mikilla vinsælda hjá tedrykkjufólki síðan hún kom fyrst á markað fyrir nokkrum árum síðan.
Þú byrjar á því að fylla karöfluna af heitu vatni. Ef telaufin eiga að liggja lengi í vatninu, þá helliru þeim ofan í karöfluna sjálfa. Ef þau eiga að liggja í skemmri tíma, þá helliru þeim ofan í filterinn og pressar þau svo niður í botn með pressunni þegar teið hefur náð rétta bragðinu. Í báðum tilvikum kemur filterinn í veg fyrir að laufin berist ofan í tebollann þinn.
Með karöflunni kemur síðan hitakápa, sem heldur teinu þínu heitu lengur.
Rúmmál: 1,0L
Hægt er að fá tebruggarann í nokkrum litum.