Til baka
Eva Trio steikarfatið hentar frábærlega til að elda lambalærið, kjúkling, roastbeef og fleira. Fatið kemur með steikargrind, sem tryggir að allur safi og fita af kjötinu renni ofan í fatið og kjötið verður því stökkt frekar en soðið að neðan.
Steikarfatið er með Slip-Let® eiturefnafrírri viðloðunarvörn að innanverðu, sem kemur í veg fyrir að maturinn festist í því og svo auðveldara sé að þrífa það.
Stærð: 35x25cm
Fatið má fara í uppþvottavél, en við mælum eindregið með því að vaska það upp með heitu vatni og uppþvottalegi, til að auka líftíma þess.