Til baka
Þessi sængurverasett frá Night and Day eru úr 100% Jaquardofinni bómull. Sængurverasettið er í senn mjúkt og með örlítið glansandi áferð. Jaquard tæknin byggir á því að mynstrið sé saumað í sængurverasettið með mjóum bómullarþráðum, en ekki prentað á það. Það tryggir betri endingu og að sængurfötin haldi sér betur en ella.
Sængurfötin hafa hlotið OEKO-TEX 100 umhverfisvottun sem tryggir að þau eru framleidd án aðkomu heilsuspillandi efna.
Settið samanstendur af sængurveri og koddaveri með földum rennilás. Þau eru afhent í taupoka úr sama mynstri og sængurfötin sjálf.
Við viljum vekja athygli á því að koddastærðin á myndinni er ekki sú sama og á settunum okkar. Á myndunum eru sýndar danskar stærðir, en okkar eru í sömu stærð og tíðkast á Íslandi, 50x70cm.
Sæng: 140x200cm
Koddi: 50x70cm
Þvottavél: 60°C
Þurrkari: Já, á miðlungs hita.
Straujun: Já
Hreinsun: Já
Við mælum með því að sængurföt séu þvegin á röngunni.