Microplane® er amerískt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á afar vönduðum rifjárnum, fyrir allar gerðir af mat. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 1999 og framleiða þau bæði eldhúsáhöld fyrir fagfólk og áhugamenn í eldhúsinu.
Gourmet línan er með ofurbeittum hnífum úr ryðfríu stáli og mjúku handfangi, sem leggst vel í hönd. Á endanum á rifjárninu er stamur kantur, svo rifjárnið renni ekki til á borðplötunni.
Þetta rifjárn hentar afar vel fyrir rótargrænmeti, gúrkur og grasker.