Til baka
Stílhreini reykskynjarinn frá Jacob Jensen er hannaður til til að skapa öryggi, en samtímis færir hann glæsileika inná heimilið í formi nýstárlegrar hönnunar.
Stöðugur ljósgeisli skynjar reykinn. Ef ljósgeislinn er rofinn af reykögnum mun viðvörunin hljóma. Innbyggð rafhlaða með 10 ára líftíma.
Reykskynjarinn er fáanlegur í fimm litum.
Uppsetning reykskynjara:
Best er að festa reykjskynjarann upp í loft, eins hátt og hægt er, og í minnst hálfs metra fjarlægð frá veggjum, hurðum og gluggum. Það kemur í veg fyrir að reykurinn leki út án þess að þú takir eftir því. Ekki má setja reykskynjarann of nálægt baðherbergi, eldhúsi eða arni/kamínu þar sem gufa, steikingarolía og reykur geta valdið falskri viðvörun.
Í kjallara á að setja reykskynjara í stigagang.
Hægt er að festa reykskynjarann á vegg ef ekki er hægt að setja upp í loft, t.d. vegna textíllofta. Ef festa á skynjarann á vegg þarf að vera 30-50 cm fjarlægð upp í loft.
Rekstur og viðhald:
Mælt er með að þú prófir reykskynjarann með reglulegu millibili svo þú sért viss um að hann virki. Prófaðu að minnsta kosti einu sinni á ári og helst oftar. Prófaðu líka þegar þú kemur heim úr lengra fríi.
Málaðu aldrei yfir reykskynjarann þinn og skiptu honum út á tíu ára fresti.
Fyrir frekari upplýsingar bendum við á heimasíðu slökkviliðsins.