Til baka
Philips SatinShave Prestige tryggir þér slétta og hárlausa fætur á skömmum tíma.
Á vélinni eru hlífðarpúðar sem gera það að verkum að rakvélarblöðin komast ekki í beina snertingu við húðina. Þannig er húðin vernduð svo komið er í veg fyrir pirraða húð ásamt því að þú nærð fullkomnum árangri við raksturinn.
Með tvöföldum blöðum sem eru færanleg getur þú rakað nánast hvaða svæði á líkamanum sem er, svo sem ökkla, handakrika og bikinílínu. Hægt að nota á blauta og þurra húð.
Rakvélin býður uppá hraðhleðslu og er 5 mínútna hleðsla nóg fyrir fullan rakstur.
Rafhlöðuvísir sýnir þér hvenær það þarf að hlaða rafhlöðuna og hvenær hún er fullhlaðin.
S-laga handfang veitir hámarks stjórn og gerir það auðvelt að stjórna vélinni.