Til baka
Hard Face línan frá Fiskars er sú harðgerðasta sem kemur frá þeim. Hún er einkum hugsuð fyrir þá sem vilja vandaðar og fallegar eldhúsvörur sem eiga að endast.
Botninn á Hard Face línunni er sérstaklega þykkur og dreifir hitanum vel. Þessi þykki botn gerir það að verkum að Hard Face línan hitnar 50% hraðar en aðrar línur frá sama framleiðanda auk þess að spara 30% af orku (m.v. keramikhellur).
Hard Face er framleidd úr áli sem hefur fengið Hardtec Superior+™ viðloðunarfría húðun. Húðunin er afar slitsterk og er laus við öll eiturefni.
Botninn á Hard Face línunni er sérstaklega þykkur og dreifir hitanum vel. Þessi þykki botn gerir það að verkum að Hard Face línan hitnar 50% hraðar en aðrar línur frá sama framleiðanda auk þess að spara 30% af orku (m.v. keramikhellur).
Handföngin eru úr bakelite plastefni, sem er tiltölulega gömul uppfinning. Það hefur til dæmis verið notað á rafmagnslagnir, vegna þess að það hitnar lítið sem ekkert.
Pottarnir koma með loki úr gleri og silikoni, sem tryggir að lokið sitji þétt á. Hægt er að hella vatni úr pottunum án þess að taka lokið af.
Hard Face má nota á allar gerðir helluborða auk þess að mega fara í uppþvottavél.
Þessi pottur er 26 cm í þvermál og rúmar 5,0L.
Framleitt í Finnlandi