Til baka
Með kaupum á steypujárnspotti frá Le Creuset tryggir þú þér vöru með langa sögu og mikil gæði. Eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáir pottar komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana.
Hitinn dreyfist mjög jafnt og gefur það því jafna og góða eldun. Hver einasti steypujárnspottur er einstakur, enda fer hver pottur um sig í gegnum hendur yfir 30 aðila áður en hann er sendur úr verksmiðjunni í Frakklandi. Pottana má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð. Þá má einig setja pottana í bakaraofn og á grill. Þó ber að verast að setja pottinn í ofna eða grill yfir 190°C þar sem plast handfangið á pottlokinu gæti bráðnað við meiri hita.
Fáanleg eru málmhandföng sem þola mikið meiri hita. Steypujárnspotturinn þinn heldur hita mjög lengi eftir að slökkt er á helluborðinu, og þannig má spara orku.
Steypujárnspottarnir frá Le Creuset koma í mörgum flottum litum, svo hægðarleikur ætti að vera að finna pott sem passar fallega við eldhúsið þitt.
Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur. Pottarnir mega fara í uppþvottavél og frysti en ekki í örbylgjuofn.
Þvermál: 22 cm
Rúmmál: 3,3L