Til baka
CTX pönnurnar frá Scanpan eru vandaðar og harðgerðar pönnur sem passa á allar gerðir helluborða. Þessi panna er 32cm í þvermál
Pannan er gerð úr fimm mismunandi lögum sem hver um sig hefur veigamikinn þátt í uppbyggingu pönnunnar. Þar má helst nefna stál fyrir styrkleika og spanvirkni, ál fyrir frábæra hitaleiðni og viðloðunarfría húð sem er svo sterk að nota má stáláhöld á pönnuna.
- Botninn á pönnunni er boginn svo auðveldara sé að beita áhöldum á pönnuna.
- Pannan má fara í bakaraofn í allt að 260°C.
- Handföng hitna ekki við steikingu (hitna þó í ofni).
- Jöfn hitadreifing.
- Notið uppþvottalög við þrif.
- Gætið þess að hita hvorki né kæla pönnuna of hratt. Það fer illa með allar pönnur.
- Framleitt í Danmörku.
- Scanpan vörurnar eru notaðar í Masterchef USA og Masterchef Australia.