Til baka
Með kaupum á steypujárnspönnu frá Le Creuset tryggir þú þér vöru með langa sögu og mikil gæði. Eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáar pönnur komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana.
Hitinn dreyfist mjög jafnt og gefur það því jafna og góða eldun. Hver einasta steypujárnspanna er einstökur, enda fer hver panna í gegnum hendur yfir 30 aðila áður en hún er send úr verksmiðjunni í Frakklandi. Pönnurnar má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð.
Steypujárnspönnurnar frá Le Creuset koma í mörgum flottum litum, svo hægðarleikur ætti að vera að finna pönnu sem passar fallega við eldhúsið þitt.
Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur. Pönnurnar mega fara í uppþvottavél og frysti en ekki í örbylgjuofn.
Þvermál: 23 cm