Til baka
Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu persónur hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.
Á hverju ári koma út nýjar könnur auk fleiri kanna sem einungis eru framleiddar í takmörkuðu upplagi. Hér er því um skemmtilega söfnunarvöru að ræða.
Þessi krús er með Múmínmömmu í aðalhlutverki er hönnuð af keramikteiknaranum Tove Slotte. Hún byggir teikningar sínar á myndasögunni "Múmínvetur (1959)" eftir Tove og Lars Jansson og "Þerna Múmínmömmu (1956)". Á teikningunni er Múmínmamma að huga að grænmetisgarðinum sínum með Misabel, þernunni sinni. Múmínmamma er ekki ókunnug litlu hlutunum lífins sem veita ánægju, eins og til dæmis að taka sér pásu og gæða sér á góðum kaffibolla, eins og sjá má á hinni hlið bollans.
Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil selt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.
Rúmmál: 30 cl.