Til baka
Moccamaster kaffivélarnar eru flestir farnir að þekkja en þessar glæsilegu vélar hafa verið framleiddar frá árinu 1968.
Vélin er falleg, endingargóð og auðveld í notkun. Hún er einungis í 6 mínútur að hella uppá 10 bolla af kaffi (1,25L).
Kaffið blandast jafnt í könnuna sem gefur besta mögulega bragðið. Vélin er með tvö hitakerfi, annað þeirra sér til þess að hiti vatnsins haldist á milli 92°C og 96°C og hin heldur kaffinu þínu heitu við 80-85°C.
Á vélinni er takki sem hægt er að ýta á og þá slekkur hun á sér 40 mínútum eftir uppáhellinguna.
Á könnunni er dropastoppari svo það er auðvelt að hella úr henni.
Moccamaster vélarnar eru framleiddar, samsettar og prófaðar í Hollandi.
Vélarnar eru ECBC vottaðar og á þeim er 10 ára ábyrgð. ATH að skrá þarf ábyrgðina innan 6 mánuða frá kaupum inná vefsíðu Moccamaster, www.moccamaster.com