Til baka
Kastehelmi glerlínan, sem Oiva Toikka hannaði árið 1964, er ekki einungis falleg vörulína, heldur einnig skemmtileg lausn á þekktu vandamáli í glervöruframleiðslu. Það getur nefnilega verið hvimleitt vandamál að losna við för í glerinu, sem koma þegar að vélar pressa glerið saman.
En Toikka fann skemmtilega lausn á þessu vandamáli með því að setja glerdropa yfir förin og út kom þessi skemmtilega hönnun. Iittala setti vörulínuna aftur í framleiðslu árið 2014 því að 50 ár væru liðin síðan að fyrirtækið og hönnuðurinn tóku höndum saman í framleiðslu á fyrsta flokks hönnunarvöru.
Stærð: 9.7 cm / 0.3 L
Má fara í uppþvottavél á allt að 55°C