Þessi Hoptimist Bimble stúdent er vönduð dönsk hönnun sem lífgar upp heimilið þitt. Þessi stúdína er frábær útskriftargjöf fyrir nýstúdentinn.
Hoptimist er danskt fyrirtæki stofnað af Gustav Ehreneich árið 1968. Hoptimist var stofnað með því markmiði að búa til fígúru sem væri eilíf áminning um jákvæðni og bjartsýni. Í dag eru hamingjusamir hoptimistar hluti af danskri hönnunarsögu og skapa gleði um allan heim.
Bimble og Bumble eru fyrstu hoptimistarnir úr smiðju Gustav Ehreneich, þau tákna litla brosandi stúlku og lítinn umhyggjusaman dreng.