Til baka
Claus Holm er einn vinsælasti sjónvarpskokkur Dana um þessar mundir. Árið 2015 gaf hann út sína eigin vörulínu sem hefur vaxið ört, enda um einstaklega skemmtilegar vörur að ræða.
Pannan er gerð úr steypujárni og hitnar því ákaflega vel og mikið. Það tryggir að ysta lagið á matnum þínum verður stökkt og gott. Pannan er einnig hentug fyrir fiskibollur, kjötbollur, muffins og falafel - leyfið hugmyndafluginu endilega að ráða.
Mál: 33 x 19 x 4,5 cm.
Fyrir áhugasama um uppskriftir og fleira bendum við á heimasíðuna hans www.claus-holm.dk.