Til baka
Þetta hnífasett kemur frá japanska gæðaframleiðandanum Global. Settið inniheldur þrjá hnífa:
G-2 hnífurinn er vinsælasti kokkahnífurinn í seríunni frá Global. Hann er með 20cm löngu blaði og hentar vel í að skera niður kjöt, hvort sem það er fyrir matreiðslu eða eftir matreiðslu. Einnig er hægt að nota hann í að skera grænmeti.
GS-1 hnífurinn er minni hnífur, með 11cm blaði. Hann er einkum hugsaður í að skera niður grænmeti, hvort sem þú vilt sneiða það eða skera með öðrum hætti.
GSF-15 hnífurinn er svo einn af minnstu hnífunum í seríunni frá Global, en hann hentar vel til að skera minni hluti þar sem nákvæmnin þarf að vera mikil. Einnig er hægt að nota hann í að skera hýði af ávöxtum og grænmeti.
Við mælum ekki með því að hnífar séu settir í uppþvottavél, því það fer sjaldan vel með bitið á þeim við endurtekinn þvott í uppþvottavél.