Til baka
Við gerð Iceforce hnífasettsins frá Tefal er notast við kælitækni þar sem að stálið er kælt niður í -120°C til að auka styrkinn í stálinu og auka tæringarþol þess. Með því helst bitið í hnífunum lengur.
Settið hentar jafnt fyrir byrjendur sem og þá sem vilja endurnýja eldhúshnífana.
Settið inniheldur:
- 9cm Grænmetishníf
- 20cm Eldhúshníf
- 11cm Fjölnotahníf
- 20cm Kjöthníf
Við mælum með því að eldhúshnífar séu ekki settir í uppþvottavélar, til að bitið á þeim endist lengur án þess að þurfi að brýna þá.