Til baka
Fyrsti Global hnífurinn var hannaður árið 1985 af Komin Yamada. Global hnífar eru framleiddir úr þeim bestu hráefnum sem völ er á. Global hnífarnir eru úr Cromova 18 ryðfríu stáli sem er sérframleitt fyrir Global og er harðara en hefbundið stál.
Þessi hnífur er alhliðahnífurinn. Alhliðahnífur sem er frábær fyrir fjölbreytt verkefni, notaðu þennan slétta alhliðahníf til að sneiða og brytja ýmsa harða sem og mjúka matvöru. Sléttur alhliða hnífur er einnig fullkomið verkfæri til að skræla ávexti þar sem hann býður upp á beinan og hreinan skurð.
Handfangið er hola að innan með sandfyllingu sem veitir hnífnum jafna þyngdardreifingu.
Við mælum með því að Global hnífarnir séu ekki settir uppþvottavél, það skemmir þá til lengri tíma séð og minnkar bitið á þeim.
Blaðið: 12 cm