Til baka
Mini pönnurnar úr Garonne línunni frá franska framleiðandanum Pillivuyt eru skemmtileg viðbót í eldhúsið. Pönnurnar eru úr steypujárni (e. cast iron) og ná miklum hita. Henta frábærlega undir eðlu, hvítlauksristaðar rækjur, bakaðann ost eða hvað sem huginn girnist.
Pannan má fara í ofn eða grill upp að 260°C.
Við mælum með því að pannan séu vaskaðar upp í höndunum og þurrkaðar strax. Gott getur verið að bera svolitla matarolíu með eldhúspappír á þær eftir uppvask.
Þvermál: 21cm