Til baka
Flyshnífinn frá Fiskars er lítill og lipur hnífur sem fer vel í hendi og hentar sérlega vel til að flysja ávexti og grænmeti en líka gott að grípa til hans við önnur eldhúsverk.
Blaðið er úr japönsku ryðfríu stáli.
Gott grip (SoftGrip™) er einkennandi fyrir hnífana en einnig er fingravörnin dýpri en á mörgum öðrum hnífum og eru þeir góðir fyrir byrjendur.
Mál: 8 cm
Í seríunni er að finna yfir 10 hnífa, hnífastál, fyrirskurðargaffal og grænmetissneiðara.
Hnífurinn má fara í uppþvottavél en við mælum þó aldrei með því að setja hnífa í uppþvottavél þar sem það veikir bit hnífsins.