Til baka
Þetta ferðamál er hugsað fyrir þá sem vilja getið tekið uppáhalds teið sitt með sér í bílinn, strætó eða jafnvel í gönguferð. Í lokinu er innbyggður tefilter, sem þú fillir með telaufum og hellir svo sjóðandi heitu vatni upp að beygðu brúninni. Svo læturðu teið liggja í krúsinni í svolítinn tíma til að vatnið taki bragð. Gott getur verið að snúa krúsinni við annað slagið til að vatnið komist í meiri snertingu við teið.
Teið helst heitt í langan tíma, því krúsin er með tveimur "veggjum" og hitnar loftið á milli þeirra og veitir meiri einangrun.
Lokið er 100% vatnsþétt. Krúsin er einnig með strappa svo hægt sé að taka hana með sér í gönguferð. Auðvelt er að opna krúsina með því að smella á hana. Það þarf aðeins að nota aðra höndina í það og því er hentugt að nota þessa krús í bílnum.
Hæð: 18 cm
Breidd: 7,3 cm
Rúmmál: 35 cl
Má fara í uppþvottavél.