Til baka
Alfredo Häberli hannaði Essence línuna árið 2001. Essence glösin voru hönnuð með það í huga að hafa eins fá glös og mögulegt væri fyrir allar tegundir vína. Þegar þeim er raðað saman eru þau einstaklega samstíga. Essence serían er einkum þekktust fyrir glösin sem í henni eru, en þau hafa notið mikilla vinsælda í langan tíma. Línan hefur nú stækkað og í hana eru nú einnig komnir diskar, skálar og krukkur.
Stærð: 20,5 cm / 0.83 L
Má fara í uppþvottavél