Til baka
Cooking Star er óhefðbundin eldhúsvigt, en með henni er hugsuninin að hægt sé að mæla agnarsmáar einingar með skeiðinni sjálfri. Vigtin sýnir þyngd með 0,1 gramma millibili á stafrænum LCD skjá. Hámarksþyngd er 500 gr., sem er í flestum tilvikum meira en kemst fyrir í skeiðinni.
Cooking Star er mjög heppileg í að vigta krydd, kryddjurtir og önnur innihaldsefni sem notuð eru í litlu mæli.
Auðvelt er að þrífa skeiðina, þar sem hægt er að taka skeiðina sjálfa af og setja í uppþvottavél. Skeiðin er með orkusparandi slökkvikerfi sem slekkur á mælinum þegar að hann er ekki í notkun.
Stærð: 20x2,5cm - 3ja ára ábyrgð.