Til baka
Crispy vörulínan frá Frederik Bagger samanstendur bæði af fallegu postulínsstelli og kristals glösum, karöflum og skálum. Frederik Bagger er sonur hins þekkta vöruhönnuðar Erik Bagger. Frá því hann var lítill drengur hefur hann lært af föður sínum ásamt því að vinna sig upp í fyrirtækinu hans. Árið 2014 ákvað hann að láta gamlan draum rætast og stofnaði sitt eigið fyrirtæki sem nú framleiðir hágæða borðbúnað.
Glæsileg skál undir eftirréttinn eða undir sælgæti og annað góðgæti.
Þvermál: 11,5 cm.
Hæð: 10 cm.
Rúmmál: 42 cl.
Efni: Kristall.