Til baka
Kusintha glerserían frá Bitz er framleidd í Spáni úr litum sem passa vel við aðra hluti úr Bitz línunni. Skálin er úr endurunnu gleri. Kusintha þýðir "breyting" á Chichewa, sem er tungumál íbúa í Malawi. Þessi sería er unnin í samvinnu við Rauða Krossinn í Danmörku með það fyrir augum að styðja við fólk í Malawi og auka aðgang íbúa að hreinu vatni. Í dag er aðeins um þriðjungur þjóðarinnar með aðgang að hreinu vatni. Markmiðið er að safna 1 milljón danskra króna á fimm árum til að styðja við þetta verkefni.
Stærð: 20 cm