Til baka
Þessar skálar er hluti af Bernadotte seríunni frá Georg Jensen.
Við hönnun þessa matarstells, þá vildu hönnuðirnir ná að blanda saman nútímalegri hönnun í bland við gamla fúnktion stílinn sem var allsráðandi fyrir um 50 árum síðan. Serían hefur því þetta flotta og nútímalega form með litlum rifflum á köntunum sem gefa henni sérstakt yfirbragð og fallegt útlit.
Maturinn er því rammaður fallega inn án þess að hönnunin eyðileggi ásýndina. Serían er framleidd til heiðurs Sigvard Bernadotte, sem var fæddur í sænsku konungsfjölskylduna árið 1907, en var einnig afkastamikill hönnuður fyrir Georg Jensen á árum áður.
Mál: 7.4cm