Til baka
Þetta fallega barborð er fullkomið fyrir heimabarinn. Barinn er á tveimur hæðum og er upplagt að nota efri hæðina fyrir baráhöldin og mest notuðu flöskurnar. Neðri hæðina getur maður síðan nýtt undir hinar flöskurnar.
Borðið má nota undir ýmislegt annað, t.d. setja á það lampa eða blómapotta og bækur, eða jafnvel sem lítið aukaborð í eldhúsið. Borðið er á hjólum svo auðvelt er að færa það á milli staða. Með borðinu fylgir bakki í sama lit sem hægt er að nota til að bera fram drykki, eða t.d. morgunverð í rúmið
Mál: 60,6x40,5x66,4cm
Borðið er fáanlegt í fleiri litum.