Til baka
Þessi fallegi hitamælir er úr Bankers línunni eftir Arne Jacobsen og passar með klukkunum úr Bankers línunni. Hér að neðan má lesa meira um Bankers línuna:
Bankers veggklukkan var hönnuð af Arne Jacobsen sérstaklega fyrir Seðlabanka Danmerkur árið 1971.
Arne Jacobsen lagði það í vana sinn af hanna sín verk frá toppi til táar, þ.e. bygginguna sjálfa og öll þau húsgögn sem í hana fóru. Þar var þessi veggklukka engin undantekning.
Samstarfsmaður Jacobsen til margra ára, Teit Weylandt, var með honum í liði við hönnunina til að fylgja því úr hlaði að klukkan yrði framleidd nákvæmlega eftir upprunalegum teikningum hans.
Þvermál: 12cm
Gangverk: japanskt (mælir celsius gráður)
Mælirinn notast við AA 1,5V rafhlöður (fylgja ekki)
Efni: Ál og gler
Við mælum með því að mælirinn sé þrifinn með rökum klút.