Til baka
Þessi glæsilega klukka er úr smiðju danska hönnuðarins Arne Jacobsen, en hún byggir á þeirri klukku sem prýðir turninn á Ráðhúsinu í Árósum sem vígt var árið 1941.
Arne Jacobsen hafði áður hannað borðúr fyrir danska rafvöruframleiðandann Lauritz Knudsen og síðar kom það borðúr út í Roman útfærslunni sem vísar í klukkuna frægu í Árósum.
Fæturnir eru innblásnir af hönnun Jacobsen á Maurnum og Sjöustólunum.
Þó klukkan hafi upprunalega verið hönnuð sem borðúr, þá hefur hún fengið vekjaraútbúnað svo hægt sé að nota klukkuna sem vekjaraklukku.
Klukkan er útbúin ljósskynjara og að sjálfsögðu "snooze hnappi.
B: 11cm
H: 12cm
Við mælum með því að klukkan sé þrifin með rökum klút. Klukkan notar AA 1,5V batterý sem fylgja ekki.