Til baka
Þessi fallegu hnífapör eru einn af gimsteinunum í danskri hönnunarsögu. Þau líta nákvæmlega eins fallega út í dag og þau gerðu árið 1957, þegar þau voru hönnuð.
Arne Jacobsen er einn af afkastamestu og áhrifamestu hönnuðum sögunnar. Hann vann á mörgum mismunandi smiðum hönnunar, allt frá arkitektúr, textílhönnun, húsgögn, ljós og húsbúnað. Það er ekki orðum aukið að segja að hönnun hans hafi lagt veginn að því sem í dag er þekkt sem skandinavískur stíll. Hnífapörin hans eru akkúrat dæmi um þetta.
Þessir kökugafflar eru úr ryðfríu stáli sem fengið hefur matta áferð. Má fara í uppþvottavél.
Gafflarnir eru 4 í pakka og eru 155mm á lengd.